UM ÁVINNA
Reynslan að verki
Að baki ÁVINNU stendur Þórdís Ósk Helgadóttir, sem hefur gegnt fjölbreyttum stjórnunarstörfum, meðal annars sem sviðsstjóri hjá Reykjanesbæ og deildarstjóri hjá Reykjavíkurborg. Hún býr yfir umfangsmikilli reynslu af rekstrar- og mannauðsstjórnun, þjónustustjórnun, stefnumótun, verkefnastjórnun, stafrænni þróun og innleiðingu umbóta og breytinga.
Starfsreynsla hennar spannar bæði opinbera stjórnsýslu og einkarekstur. Hún hefur jafnframt komið að fjölbreyttum verkefnum á sviði ferðaþjónustu, sölu- og markaðsmála, hönnunar og þjónustu og rekstrar. Þessi fjölbreytti bakgrunnur hefur veitt henni góða innsýn í ólíkt rekstrarumhverfi, þarfir viðskiptavina og mikilvægi þess að þróa skilvirka og árangursríka þjónustu.
Þórdís er með meistaragráðu í verkefnastjórnun, IPMA D-vottun í verkefnastjórnun og stundar meistaranám í mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands. Hún hefur jafnframt eflt faglega þekkingu sína með námskeiðum og símenntun á sviði stjórnunar, rekstrar og starfsþróunar.
ÁVINNA var stofnuð með það að leiðarljósi að nýta þessa fjölbreyttu reynslu og þekkingu til að styðja fyrirtæki og stofnanir við að takast á við áskoranir, nýta tækifæri og ná árangri. Áherslan er á hagnýtar lausnir, gott samstarf og markvissa framkvæmd sem skilar raunverulegum verðmætum.
Hjá ÁVINNU mætast þekking, reynsla og framkvæmd – með ávinning viðskiptavinarins að leiðarljósi.
