Persónuverndarstefna
ÁVINNA leggur áherslu á trúnað, fagmennsku og ábyrga meðferð persónuupplýsinga.
Söfnun persónuupplýsinga
Vefsíða ÁVINNU er upplýsingasíða um starfsemi og þjónustu fyrirtækisins. Ekki er boðið upp á skráningu eða sambandseyðublöð.
Þegar einstaklingar hafa samband með tölvupósti kunna nafn, netfang og aðrar upplýsingar sem þeir veita að vera varðveittar í þeim tilgangi að svara fyrirspurnum og eiga samskipti um mögulegt samstarf.
Hýsing og tæknilegar upplýsingar
Vefsíðan er hýst hjá Wix, sem kann að vinna með tæknilegar upplýsingar, svo sem IP-tölur og upplýsingar um vafra og tæki, vegna virkni, reksturs og öryggis vefsíðunnar.
Vefkökur
Wix notar nauðsynlegar vefkökur til að tryggja virkni og öryggi vefsíðna.
ÁVINNA hefur ekki sjálfstætt sett upp Google Analytics eða önnur utanaðkomandi greiningartól.
Varðveisla og öryggi
ÁVINNA leggur áherslu á örugga meðferð persónuupplýsinga. Upplýsingar eru ekki varðveittar lengur en nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslunnar eða gildandi lagaskyldur.
Réttindi einstaklinga
Einstaklingar eiga rétt á að óska eftir aðgangi að persónuupplýsingum sínum, leiðréttingu þeirra eða eyðingu, eftir því sem lög heimila.
Einstaklingar geta jafnframt leitað til Persónuverndar telji þeir að meðferð persónuupplýsinga brjóti gegn gildandi lögum.
Fyrirspurnir
Fyrirspurnum um persónuvernd má beina til ÁVINNU með tölvupósti.
ÁVINNA – Ávinningurinn er þinn.